Troll Elite 15 kg

12.200 kr.

15 kg

Category:

Description

TROLL Elite- Hágæða þurrfóður fyrir hinn klassíska hund sem er í venjulegri hreyfingu.

TROLL Elite er þróað í samvinnu við hundaeigendur og dýralækna í fremstu röð. Til að ná fram því besta í hundinum er gott fóður lykilatriði ásamt ræktun og þjálfun hundsins.

Framleiðsla
TROLL Elite er framleitt af Doggu AB í Svíþjóð sem sérhæfir sig í framleiðslu á hundafóðri og hefur ISO 9001 gæðavottun.
TROLL Elite er framleitt með loftsugu sem gerir það að verkum að fitan blandast betur inn í fóðrið. Með þessari aðferð fær hundurinn meiri næringu heldur en í fóðri sem er látið liggja í fitu. Með þessari aðferð sest minni fita í fóðurpokann, fóðurglasið eða í matardallinn.

Engin rotvarnarefni
Hæg hitun innihaldsefnanna gerir það að verkum að hráefnið heldur upprunalegu bragði og lykt. Ný þurrktækni gerir það að verkum að fóðrið inniheldur lítið vatn og næst því góð ending án viðbættra rotvarnaefna.

Fitusýrur & prótín
Í TROLL Elite eru aðeins notaðar hágæða dýra og fiskiafurðir. Það gerir það að verkum að TROLL Elite inniheldur allar nauðsynlegar amínósýrur í réttu magni. Í fóðrið er m.a. bætt við Omega-3 og Omega-6 fitusýrum sem eru mikilvægar fyrir heilbrigða líkamsstarfsemi hunda.

Það er því engin tilviljun að TROLL Elite er mjög vinsælt meðal hundaeigenda.

Innihald: Hveiti, þurrkaður kjúklingur, beinafita, þurrkaður fiskur, kjötbeinmjöl af svíni, maísspírur af kjúklingi (kjúklingakraftur), natríum, ger, kalsíumfosfat, kalíumklóríð, natríumfosfat.

Næringargildi
14.100 kJ/ 3.400 kcal pr. kg af fóðri
Prótín                   23%
Fita                        11%
Trefjar                  2%
Vatn                      10%
Steinefni             7% Þar af 1,5% kalsíum og 1,2% fosfór

Viðbætt efni pr. kg af fóðri:
A vítamín 9900 IE, D3 vítamín 1041 IE, E vítamín 62 mg, kopar 5,2 mg, mangan 5,2 mg, sínk 32 mg, járn 1,6 mg.

Notkun
TROLL Elite er annaðhvort gefið þurrt beint í skál eða bætt við vatni og látið standa í 8-10 mínútur fyrir fóðrun. Eftir að hundur hefur klárað matinn sinn úr skálinn skal þvo skálina strax til að koma í veg fyrir að bakteríur skjóti rótum sínum í skálinni. Hundurinn skal alltaf hafa aðgang að fersku vatni!
TROLL Elite skal geyma á þurrum stað og þar sem hitastig fer ekki yfir venjulegan stofuhita.

Viðmiðunartafla fyrir fóðurgjöf:

Þyngd hunds: Fóður í grömmum: Þyngd hunds: Fóður í grömmum:
1 – 5 kg 40 – 125 g 30 – 35 kg 355 – 395 g
10 – 15 kg 200 – 260 g 40 – 45 kg 435 – 470 g
20 – 25 kg 270 – 315 g 50 – 55 kg 505 – 535 g

1 dl er um það bil 45 gr.

You may also like…