Troll Sport 15 kg

13.200 kr.

15 kg

Category:

Description

TROLL Sport – Hágæða þurrfóður fyrir hunda sem eru í mikilli hreyfingu.

TROLL Sport er þróað í samvinnu við hundaeigendur og dýralækna í fremstu röð. Til að ná fram því besta í hundinum er gott fóður lykilatriði ásamt ræktun og þjálfun hundsins.
TROLL Sport stuðlar að góðum feldi og styrkir einnig þófa

Framleiðsla
TROLL Sport er framleitt af Doggu AB í Svíþjóð sem sérhæfir sig í framleiðslu á hundafóðri og hefur ISO 9001 gæðavottun.
TROLL Sport er framleitt með loftsugu sem gerir það að verkum að fitan blandast betur inn í fóðrið. Með þessari aðferð fær hundurinn meiri næringu heldur en í fóðri sem er látið liggja í fitu. Með þessari aðferð sest minni fita í fóðurpokann, fóðurglasið eða í matardallinn. Fóður sem er inniheldur 16% fitu og er framleitt með loftsugu gefur hundi meiri næringu heldur en fóður sem er framleitt án loftsugu og á að innihalda 20-21% fitu.

Engin rotvarnarefni
Hæg hitun innihaldsefnanna gerir það að verkum að hráefnið heldur upprunalegu bragði og lykt. Ný þurrktækni gerir það að verkum að fóðrið inniheldur lítið vatn og næst því góð ending án viðbættra rotvarnaefna.

Fitusýrur og prótín
Í TROLL Sport eru aðeins notaðar hágæða dýra og fiskiafurðir. Það gerir það að verkum að TROLL Sport inniheldur allar nauðsynlegar amínósýrur í réttu magni. Í fóðrið er m.a. bætt við Omega-3 og Omega-6 fitusýrum sem eru mikilvægar fyrir heilbrigða líkamsstarfsemi hunda.

Það er því engin tilviljun að TROLL Sport er mjög vinsælt meðal hundaeigenda.

Inniheldur FOS fyrir betri þarmaflóru og góða meltingu.

Vítamín og steinefni
Margra ára reynsla sýnir okkur að hundar í mikilli hreyfingu þurfa meira af vítamín og steinefnum ólíkt hundum sem eru í minni hreyfingu. Því er TROLL Sport með meira af aukaefnum t.d. kalsíum og fosfór.

Innihald: Hveiti, þurrkaður kjúklingur, beinafita, þurrkaður fiskur, maísspírur, hrísgrjón, kjötbeinmjöl af svíni, kjúklingakraftur, FOS (0,625%) natríumklóríð, ger, kalsíumfosfat, kalíumklóríð,

Næringargildi
15.000 kJ/ 3.650 kcal. pr kg af fóðri
Prótín                   26%
Fita                        16%
Trefjar                  2%
Vatn                      10%
Steinefni             8% þar af 1,5% kalsíum og 1,2% fosfór

Viðbætt efni pr. kg af fóðri:
A vítamín 10330 IE, D3 vítamín 1087 IE, E vítamín 65 mg, kopar 5,4 mg, mangan 5,4 mg, sínk 34 mg, járn 1,7 mg.

Notkun
TROLL Sport er annaðhvort gefið þurrt beint í skál eða bætt við vatni og látið standa í 8-10 mínútur fyrir fóðrun. Eftir að hundur hefur klárað matinn sinn úr skálinn skal þvo skálina strax til að koma í veg fyrir að bakteríur skjóti rótum sínum í skálinni. Hundurinn skal alltaf hafa aðgang að fersku vatni!
TROLL Sport skal geyma á þurrum stað og þar sem hitastig fer ekki yfir venjulegan stofuhita.

Viðmiðunartafla fyrir fóðurgjöf:

Þyngd hunds: Fóður í grömmum: Þyngd hunds: Fóður í grömmum:
1 – 5 kg 40 – 110 g 30 – 35 kg 380 – 420 g
10 – 15 kg 180 – 240 g 40 – 45 kg 450 – 490 g
20 – 25 kg 290 – 350 g 50 – 55 kg 525 – 550 g

1 dl. er um það bil 48 gr.

You may also like…